fbpx
IMG_6747

Yfirlýsing frá Knattspyrnufélaginu FRAM

Stjórn Knattspyrnudeildar hefur óskað eftir því að aðalstjórn félagsins taki við rekstri knattspyrnudeildar.
Að jafnaði eru stjórnarkjör hjá knattspyrnudeildinni að vori, hins vegar eru mörg og mikilvæg verkefni unnin á næstu vikum og fram til áramóta sem stjórnin fráfarandi telur best að séu á forræði aðalstjórnar eða annara sem aðalstjórn velur til verksins.

Það hefur reynst sífellt erfiðara að manna allt það sjálfboðaliðsstarf sem umfangsmikill rekstur eins og knattspyrnudeildin kallar á. Sú stjórn sem nú fer frá hefur starfað í 2.5 ár og á þeim tíma hefur kvarnast úr hópnum. Nú er svo komið að þeir sem eftir sitja hafa ekki lengur tíma eða aðstöðu til að sinna starfinu eins og þarf og því er brýnt að annað fólk komi að starfinu og haldi áfram að byggja upp deildina.

Aðalstjórn og starfsfólk  Fram vill þakka stjórnarmönnum knattspyrnudeildar fyrir gott starf í þágu félagsins.

Aðalstjórn mun því í framhaldi skipa stjórn sem fer með öll málefni deildarinnar.

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!