Þeir mæta á HERRAKVÖLD FRAM.
Herrakvöld FRAM verður haldið föstudaginn 8. nóvember í veislusal okkar Framara
Frábær skemmtun þar sem ræðumaður er engin annar en Þorsteinn Guðmundsson leikari, Sólmundur Hólm fer með gamanmál eins og honum einum er lagið.
Veislustjórn verður svo í höndum Sigurðar Inga Tómassonar
Húsið opnar kl. 19:00 og borðhald hefst kl. 20:00
Happdrættið og málverkauppboðið verður á sínum stað undir styrkri stjórn Sigurðar Inga Tómassonar.
Þóra okkar sér um að allir væti kverkarnar reglulega þannig að nú er bara að mæta.
Takið kvöldið frá !
Boðið verður upp á frábært hlaðborð frá Laugaási.
Allir karlar, Framarar, ungir, gamlir, það verður gríðarleg stemming eins og alltaf.
Miðasala í Íþróttahúsi Fram – pantið í síma 533 5600
miðaverð kr. 7500.- sjáumst hressir
Aðalstjórn FRAM