fbpx
mót3 vefiur

Sumarskóli FRAM Grafarholti og Úlfarsárdal 2016, skráning hefst 2. maí

imageSUMARNÁMSKEIÐ FRAM 2016 Grafarholt og Úlfarsárdalur

Knattspyrnuskóli FRAM og Íþróttaskóli FRAM eru starfræktir í Grafarholti og Úlfarsárdal í sumar. Þar býður félagið upp á öruggt umhverfi og góða aðstöðu í hjarta hverfisins. Námskeiðin fara fram í og við Ingunnarskóla en ef veður er vont þá verða æfingar færðar inn í íþróttahús Ingunnarskóla. Knattspyrnuskólinn verður starfræktur á æfingasvæði FRAM í Úlfarsárdal. Handboltanámskeiðið er haldið í íþróttahúsi Ingunnarskóla.

 ÍÞRÓTTASKÓLI  FRAM
Íþróttaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 5-10 ára sem hafa gaman af íþróttum og útivist.  Farið verður í fjölbreytta og skemmtilega leiki, hinar ýmsu íþróttagreinar kynntar og einnig verður farið í stuttar ferðir.  Skólinn verður rekinn samhliða knattspyrnuskólanum þannig að einstaklingar geta valið hvort þeir eru eingöngu í knattspyrnu eða vilja hafa mikla fjölbreytni.
Hvert námskeið stendur í 2 vikur frá kl. 09:00-16:00 alla virka daga.  Jafnframt er boðið upp á hálfsdagsnámskeið frá kl. 09:00-12:00 og kl. 13:00-16:00. Hægt er að velja fyrir eða eftir hádegi,  einnig knattspyrnuskóla fyrir hádegi og íþróttaskóla eftir hádegi. Ekki verður boðið upp á heitan mat og þurfa börnin að koma með nesti.
Boðið verður upp á gæslu í Ingunnarskóla  frá kl. 07:45-09:00 og kl. 16:00-16:30.

Námskeið 1.  09 -16. júní     09:00-16:00 (6 dagar)
Námskeið 2.  20 – 01. júlí     09:00-16:00
Námskeið 3.  04 – 15. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  18 – 22. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

HANDBOLTASKÓLI FRAM
Handboltaskóli FRAM er fyrir krakka á aldrinum 6-14 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig.  Námskeiðið stendur í 1 viku, frá kl. 09:00-12:00 (börn fædd 2006-2009) og 13:00-16:00 (börn fædd 2002-2005) virka daga.  Námskeiðið fer fram í íþróttahúsi Ingunnarskóla. Kennarar eru íþróttamenntaðir og handboltaþjálfarar hjá FRAM.

Námskeið 1.   15 –  19. ágúst        09:00-12:00   (börn fædd 2006-2009).
Námskeið 2.   15 – 19. ágúst        13.00-16.00   (börn fædd 2002-2005).

KNATTSPYRNUSKÓLI FRAM
Knattspyrnuskóli FRAM er fyrir stráka og stelpur á aldrinum 5-12 ára. Hópnum er skipt upp eftir aldri og þannig reynt að koma til móts við þarfir hvers hóps fyrir sig. Mikil áhersla er lögð á leikformið hjá yngstu þátttakendunum en meiri sérhæfing og tækni hjá þeim eldri.  Hvert námskeið stendur í 2 vikur, frá kl. 09:00-12:00 alla virka daga.
Boðið er upp á gæslu í félagsheimili FRAM í Úlfarsárdal frá kl.07:45 og er það innifalið í gjaldinu.

Námskeið 1.  09 -16. júní     09:00-16:00 (6 dagar)
Námskeið 2.  20 – 01. júlí     09:00-16:00
Námskeið 3.  04 – 15. júlí     09:00-16:00
Námskeið 4.  18 – 22. júlí     09:00-16:00 (viku námskeið).

Skráning
Skráning hefst  2. maí og fer fram á heimasíðu FRAM www.fram.is Skráning og greiðsla fer fram í gegnum Nóra skráningarkerfi FRAM.
Námskeiðsgjald í knattspyrnuskóla og íþróttaskóla ½ dagur er kr. 10.000.-
Íþróttaskóli 09:00-16:00  kr. 19.000.-
Námskeiðsgjald í handboltaskóla er kr. 5000.-  (5 dagar).
Veittur er 10 % systkinaafsláttur og einnig er veittur 10 % afsláttur ef keypt eru fleiri en eitt námskeið. Innifalið í verði er: Gæsla, bolur, veisla í lok hvers námskeiðs og skemmtilegt námskeið unnið af fagfólki.

Allar nánari upplýsingar um námskeið á vegum FRAM er hægt að fá í síma 587-8800 skrifstofa FRAM í Úlfarsárdal og 533-5600  skrifstofa FRAM Safamýri milli kl 09:00 og 16:00 og í gegnum tölvupóst  toti@fram.is  og dadi@fram.is

Í von um gott samstarf í sumar

Daði Guðmundsson íþróttafulltrúi FRAM  Grafarholti og Úlfarsárdal

 

 

 

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!