fbpx
Supuvefur

Súpufundur FRAM verður haldinn föstudaginn 24. febrúar

IMG_4842Ágætu FRAMarar

Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, fimmti súpufundur vetrarins verður á föstudag 24. febrúar. Það var mjög góð mæting í síðasta súpuhádegi en rúmlega 90 manns mættu og almenn ánægja með hvernig til tókst. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.

Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-

Fimmti  fundurinn í  súpuröðinni verður föstudaginn 24.  feb.  kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.

Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu  og endilega takið með ykkur félaga.

Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!