Íþróttamaður Fram 2018 verður útnefndur sunnudaginn 30.desember.
Á 100 ára afmæli FRAM 2008 var ákveðið að taka upp þann sið að kjósa „Íþróttamann/konu ársins“ – aðila sem félagið telur að hafi náð afburða árangri í íþrótt sinni ásamt því að vera fyrirmynd FRAM innan vallar sem utan.
Tilkynnt verður um valið á “Íþróttamanni FRAM 2018″ í hófi sem haldið verður sunnudaginn 30. desember kl. 18.00 í veislusal FRAM.
Þeir FRAMarar sem tilnefndir eru fyrir árið 2018 eru:
Hulda Dagmar Magnúsdóttir. Taekwondo
Margrét Regína Grétarsdóttir Knattspyrna
Már Ægisson Knattspyrna
Steinunn Björnsdóttir Handknattleikur
Þorsteinn Gauti Hjálmarsson Handknattleikur
Allir FRAMarar eru velkominir í hófið og væri gaman að sjá sem flesta í FRAMhúsi þennan dag.
Minnum svo á Flugeldasölu FRAM í íþróttahúsi FRAM.
Knattspyrnufélagið FRAM