fbpx
Reykjavíkurúrvalið í handbolta 2019 stelpur vefur

Sex frá FRAM í Úrvalslið Reykjavíkur 2019

Grunnskólamót höfuðborga Norðurlandanna 2019 fer fram í Stokkhólmi  20.-24. maí. Mótið hefur verið haldið árlega frá árinu 1948 fyrir utan eitt ár.  Keppt er í handknattleik stúlkna, knattspyrnu drengja og frjálsíþróttum beggja kynja.

Á dögunum var valið í úrvalslið Reykjavíkur sem keppir fyrir hönd borgarinnar á mótinu. Í liðinu eru 41 keppandi, fjórir þjálfarar og tveir fararstjórar. Keppendur í úrvalsliði Reykjavíkur eru 15 leikmenn í knattspyrnu drengja , 10 leikmenn í handknattleik stúlkna, 8 drengir og 8 stúlkur í frjálsíþróttum.

Á meðan mótinu stendur er hægt að fylgjast með og fá upplýsingar á heimasíðu Íþróttabandalags Reykjavíkur, www.ibr.is. Skoða þar úrslit leikja, skoða myndir og lesa stutta umfjöllun alla daga. Einnig er hægt að fylgjast með á Facebooksíðu Íþróttabandalags Reykjavíkur. Hér er líka heimasíða mótsins http://www.nordiccapitalsschoolgames.com/

Við FRAMarar eru stoltir af því að eiga 6 keppendur í úrvalsliði Reykjavíkur þetta árið. Dagmar Guðrún Pálsdóttir, Eydís Pálmadóttir og Vigdís Karólína Elíasdóttir munu keppa í handbolta en þeir Birkir Jakob Jónsson, Mikael Trausti Viðarsson og Stefán Orri Hákonarson   í knattspyrnu.
Mótið hófst í dag mánudaginn 20. maí og óskum við þeim og þeirra liðsfélögum í Reykjavík alls hins besta.

Það gríðarlega skemmtileg upplifun að taka þátt í þessu móti og verður spennandi fyrir okkar krakka að taka þátt í þessu móti í Svíþjóð .
Þau sem voru valinn frá FRAM að þessu sinni eru:

Birkir Jakob Jónsson                      Sæmundarskóli        FRAM
Mikael Trasti Viðarsson                  Dalskóli                    FRAM
Stefán Orri Hákonarson                 Ingunnarskóli            FRAM
Dagmar Guðrún Pálsdóttir             Ingunnarskóli            FRAM
Eydís Pálmadóttir                           Ingunnarskóli           FRAM
Vigdís Karólína Elíasdóttir             Háaleitisskóli            FRAM

Gangi ykkur vel

ÁFRAM FRAM

 

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!