Í ljósi hertra sóttvarnarráðstafana verðum við að fella niður allar æfingar á vegum Fram.
Þetta á við allar æfingar inni og úti í öllum aldurshópum.
Tilmæli þessi gilda frá og með 31. okt. og til 17. nóv. eða þar til annað verður ákveðið.
Framhús verður lokað og frístundaakstur leggst af.
Félagið mun senda frá sér frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir.
Skrifstofa Fram er lokuð fyrir heimsóknir
Hægt er að hafa samband við skrifstofu félagsins með því að hringja í 533-5600 eða
Senda tölvupóst á:
dadi@fram.is
johanna@fram.is
kristinn@fram.is
toggi@fram.is
toti@fram.is
Þrátt fyrir að hlé verði gert á formlegum æfingum hvetjum við alla Framara og iðkendur til að halda áfram að sinna andlegri og líkamlegri heilsu með fjölbreyttum hætti.
Við munum hvetja þjálfara til að senda iðkendum heimaæfingar sem er tilvalið að nýta fyrir alla fjölskylduna.
Förum varlega og gerum þetta saman.
Knattspyrnufélagið Fram