AÐALFUNDUR KNATTSPYRNUFÉLAGSINS FRAM VERÐUR HALDINN Í ÍÞRÓTTAMIÐSTÖÐ FRAM MÁNUDAGINN 28. APRÍL 2025 KL. 17:00
Dagskrá:
- Venjuleg aðalfundarstörf
- Lagabreytingar
- Önnur mál
Vakinn er athygli á því að þeir sem ætla að bjóða sig fram í aðalstjórn Knattspyrnufélagsins FRAM þurfa að tilkynna framboð sitt viku fyrir aðalfund samkvæmt 12. grein laga Knattspyrnufélagsins FRAM.
Framboð skulu berast á skrifstofu FRAM Úlfarsbraut 126 í síðasta lagi mánudaginn 21. apríl og skulu framboð berast skriflega eða í tölvupósti á toti@fram.is.
Lagabreytingar samkvæmt 24. grein laga Knattspyrnufélagsins Fram.
„Tillögur til breytinga skulu tilkynntar með aðalfundarboðinu og skulu þær liggja frammi hjá aðalstjórn félagsins eigi síðar en 7 dögum fyrir aðalfund félagsins. Heimilt er þó að taka fyrir á aðalfundi tillögur til breytinga á lögum, sem síðar koma fram, ef 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna heimila.
Aðalstjórn Knattspyrnufélagsins Fram