Borgarstjóri fékk öflugt liðsinni ungra iðkenda í Fram og forsvarsmanna félagsins þegar tekin var fyrsta skóflustunga að nýrri íþróttamiðstöð í Úlfarsárdal. Framkvæmdir hefjast strax og verklok eru áætluð 2022.
Fjölnota íþróttahús, áhorfendastúka fyrir aðalleikvang í knattspyrnu, minni íþróttasalir, félags- og þjónustuaðstaða fyrir starfsfólk, þjálfara og félagsmenn, búningsrými ásamt samkomusal og fundaraðstöðu eru hlutar af íþróttamiðstöðinni. Hún verður 7.3000 m2 á þremur hæðum með aðalinngang við sameiginlegt hverfistorg við Úlfarsbraut.
Íþróttamiðstöðin er austasti hluti bygginga við Úlfarsbraut sem þjóna hverfinu. Í vestari hluta bygginganna eru leik- og grunnskóli ásamt frístundamiðstöð, menningarmiðstöð og sundlaug sem nú eru ýmist fullbyggðar eða í uppbyggingu. Íþróttaaðstaðan nýja verður nýtt af skólum í hverfinu.
Fullbúin handboltahöll og fjölbreyttir salir
Íþróttamiðstöðin mun hýsa fullbúna handboltahöll með keppnisvelli og
áhorfendapöllum fyrir allt að 1.300 manns. Vellinum má skipta upp í tvo
handboltavelli í fullri stærð. Í húsinu verða þar að auki lyftingasalur,
fjölnota æfingarsalur og bardagasalur. Búningsklefar eru 15 talsins, þar af
sérklefi fyrir hreyfihamlaða iðkendur.
Mikið hefur verið lagt upp úr félagsrýmum íþróttahússins og verður þar að finna
fjölbreytta sali að stærð og gerð, á öllum hæðum hússins. Þar verður stór
samkomusalur ásamt framreiðslueldhúsi og þaksvölum, tveir fjölnotasalir með
útsýni yfir keppnisvelli og fyrirlestrarsalur. Aðalaðkomurýmið er skemmtilegt
með deildarverslun og veitingasölu, og þaðan er gengt út á svalagang sem
umlykur handboltavöllinn. Innangengt verður milli íþróttahúss og
menningarmiðstöðvar á 1. hæð byggingar.
Nýr knattspyrnuvöllur verður gervigrasvöllur, með stúku sem rýmir 1.600 áhorfendur. Góðir grasæfingavellir verða einnig á svæðinu.
Nánari upplýsingar:
- Upplýsingasíða í Framkvæmdasjá: Íþróttamiðstöð Fram [ https://reykjavik.is/framkvaemdasjain/ithrottamidstod-fram ]
- Knattspyrnufélagið Fram [ http://fram.is/ ]
- Stutt myndband af svæðinu https://wetransfer.com/downloads/51b91d5daafb6906cfd5f63301ce8ea220191108155706/e3d90af797694ccb18bb37b7ab2b033020191108155706/19d16a
Myndir af mannvirkjunum:
- Íþróttamannvirki í Úlfarsárdal http://myndasafn.reykjavik.is/fotoweb/albums/XcmDZ2bw-GSkbNnCSfutusYpESgrJ__5cE2q1w/
Fleiri myndir munu birtast hérna http://frammyndir.123.is/pictures/
ÁFRAM FRAM