fbpx
FRAM Open 2020 auglýsing

FRAM Open 2020, verður haldið í Öndverðarnesi, föstudaginn 7.ágúst. Skráning er hafinn.

FRAM Open hefur í gegnum tíðina einkennst af gleði, glaumi og snilldartilþrifum lærðra sem leikinna. Mótið er opið öllum FRÖMurum og velunnurum félagsins.

Stemmningin sem skapast hefur á FRAM Open gerir það að verkum að gefa mætti út ríkisábyrgð fyrir skemmtilegum félagsskap en mótið tókst frábærlega í fyrra.

FRAM Open 2020 fer fram á golfvellinum Öndverðarnesi föstudaginn 7. ágúst og hefst klukkan 13:00.
Hyggilegt er að þátttakendur séu mættir á svæðið u.þ.b. hálftíma fyrr. Ræst verður út á öllum teigum kl. 13:00.

Skráning er hafin í síma 533-5600 og á toggi@fram.is 

Athugið að það sem koma þarf fram í skráningu er:
Nafn leikmanns
Kennitala leikmanns
Forgjöf leikmanns 
Ósk um að leika í holli með ?
Netfang
Keppnisgjaldið er kr. 9.500- og þarf að greiða við skráningu (sendum þátttakendum greiðslulink).

Innifalið er mótsgjald, teiggjöf og matur eftir mót.

Mikilvægt að skrá sig sem fyrst,  því mótið var fullt í fyrra.
http:// https://www.youtube.com/watch?v=T7yQAQqlyE4

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!