fbpx
FRAM Open II

Skráning á FRAM Open 2019 hafinn, munið að bóka tímanlega.

FRAM Open hefur í gegnum tíðina einkennst af gleði, glaumi og snilldartilþrifum lærðra sem leikinna. Mótið er opið öllum FRÖMurum og velunnurum félagsins.

Stemmningin sem skapast hefur á FRAM Open gerir það að verkum að gefa mætti út ríkisábyrgð fyrir skemmtilegum félagsskap en mótið tókst frábærlega í fyrra.

FRAM Open 2019 fer fram á golfvellinum Öndverðarnesi föstudaginn 9. ágúst og hefst klukkan 13:00.
Hyggilegt er að þátttakendur séu mættir á svæðið u.þ.b. hálftíma fyrr. Ræst verður út á öllum teigum kl. 13:00.

Skráning er hafin í síma 533-5600, á toggi@fram.is eða ludvik@fram.is

Athugið að það sem koma þarf fram í skráningu er:
Nafn leikmanns
Kennitala leikmanns
Forgjöf leikmanns 
Ósk um að leika í holli með ?
Netfang
Keppnisgjaldið er kr. 8.900.- og þarf að greiða við skráningu. 

Innifalið er mótsgjald, teygjöf og matur eftir mót. (lambalæri með „alles“)

Mikilvægt að skrá sig sem fyrst,  því mótið var fullt í fyrra.

Knattspyrnufélagið FRAM

Share this post

Share on facebook
Share on twitter
Share on linkedin
Share on pinterest
Share on email
Shopping cart0
There are no products in the cart!
Continue shopping
0

Skráðu þig á póstlistann!

Fáðu allar fréttir, tilboð og aðrar upplýsingar beint í æð!