Ágætu Framarar
Nú ætlum við að halda áfram að hittast yfir súpudisk, þetta er sjötti veturinn sem við höldum þessum sið.
Fyrsti súpufundur vetrarins verður á fimmtudag 26. september. Það var mjög góð mæting síðasta vetur, þetta, 60-90 manns sem mættu og almenn ánægja með hvernig til tókst. Heilmikið spjallað og létt yfir mannskapnum.
Boðið verður upp á súpu og brauð eins og venjulega.
Ekki er ætlunin að hafa þetta formlegt heldur kjörin vettvangur fyrir okkur Framara til að hittast yfir súpuskál og ræða saman.
Verðinu verður stillt í algjört hóf eða eingöngu á kostnaðarverði kr. 500.-
Fyrsti fundurinn í súpuröðinni verður fimmtudaginn 26. sept. kl. 12.00-13.30 í hátíðarsal okkar í Safamýri.
Athugið að núna verður súpan á fimmtudögum í vetur.
Frumkvöðull að súpuhádeginu Hörður „ Castró“ Einarsson verður ekki með okkur í veturinn frekar en undanfarin ár en ég er sannfærður um að hann verður áfram með okkur í anda enda var þetta honum mikið hjartans mál að finna vettvang fyrir alla FRAMara til að koma saman og eiga góða stund.
Við hvetjum alla FRAMarar til að koma í súpu og endilega takið með ykkur félaga.
Kveðja Knattspyrnufélagið FRAM